Skip to main content
EURES (EURopean Employment Services)
fréttaskýring6 September 2017European Labour Authority, Directorate-General for Employment, Social Affairs and Inclusion2 min read

Fyrsta EURES starfið þitt: Hverning geta stofnanir hagnast á þessu?

Fyrsta EURES starfið þitt (YfEJ) var stofnað upphaflega árið 2012 sem tilraunaverkefni og er markviss hreyfanleikaáætlun fyrir flæði starfa sem hjálpar fyrirtækjum og stofnunum að fylla laus störf í sérstökum geirum með hæfileikaríku fólki víðs vegar að úr Evrópu.

‘Your first EURES Job’: What’s in it for organisations?

Af hverju ættirðu að taka þátt í YfEJ áætluninni?

YfEJ verkefnið er tilvalið fyrir fyrirtæki og stofnanir sem eru að leita að ungu fólki í sérstök störf, en finna ekki rétta aðilann í heimalandinu sínu. Með því að taka þátt í YfEJ opnast dyr að dýrmætu tengslakerfi með ungum atvinnuleitendum og auk þess nýturðu kostanna af ferskum hugmyndum og skoðunum sem ungir starfsmenn, lærlingar eða starfsnemar frá öðru landi hafa fram að færa.

Hver eru helsti ávinningur af YfEJ fyrir fyrirtæki og stofnanir?

  • Að auglýsa lausar stöður í stóru netkerfi með ungum væntanlegum starfsmönnum;
  • Ef þú ert með lítið eða meðalstórt fyrirtæki, færðu fjárhagslega styrk til að koma á móts við þjálfun og aðlögunarkostnað þegar þú tekur að þér nýjan starfsmann, lærling eða starfsnema.
  • Fáðu aðstoð við að greina þarfir fyrirtækis þíns og skilgreindu viðeigandi og fýsilega aðlögunaráætlun fyrir framtíðarstarfskrafta eða starfsnema.

Hvaða fyrirtæki eða stofnanir geta tekið þátt í YfEJ áætluninni?

Til þess að geta tekið þátt í YfEJ áætluninni verðurðu að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Fyrirtækið þitt eða stofnun er staðsett í einu af 28 löndum Evrópusambandsins, á Íslandi eða í Noregi;
  • Þú ert að leita að starfsfólki í sérstakar stöður en átt erfitt með að finna viðkomandi í þínu landi;
  • Þú ert til í að ráða starfsfólk, lærlinga eða starfsnema, á aldrinum 18-35 frá öðru ESB-ríki, Noregi eða Íslandi;
  • Þú ert með aðstöðu til að bjóða upp á þjálfun í starfi og annan stuðning fyrir ungt starfsfólk.

Hvernig geta fyrirtæki og stofnanir tekið þátt í YfEJ?

Opinberu vinnumálastofnanirnar, sem taka þátt í EURES samstarfsnetinu, sjá um framkvæmd Fyrsta EURES starfsins. Allt sem þú þarft að gera til að taka þátt í verkefninu er að skrá þig hjá þessum opinberu vinnumálastofnunum (yfirleitt er það gert með því að fylla út umsóknareyðublað og senda upplýsingar um þig í gegnum vefsíðu eða með tölvupósti á netfang tengiliðs).

Ef ekki er í boði YfEJ þjónustu í heimalandi þínu, geturðu haft samband við hvaða aðila sem er á þessum lista. Við mælum með að þú hafir samband við leiðandi atvinnuþjónustur á Ítalíu, Svíþjóð, Frakklandi eða Þýskalandi.

Hvar get ég fundið frekari upplýsingar?

Vefsíðan Fyrsta EURES starfið þitt á vefsvæði EURES er frábær staður til að byrja að leita ef þú vilt fá að vita meira um verkefnið. Þar er einnig hægt að finna frekari upplýsingar og fjöldann allan af nytsamlegu kynningarefni, eins og Leiðbeiningarbæklingur fyrir fyrsta EURES starfið þitt, sem er fáanlegur á DG EMPL vefsíðunni.

 

Tengdir hlekkir:

Fyrsta EURES-starfið þitt

DG EMPL vefsíðan

 

Nánari upplýsingar:

Evrópskir atvinnudagar

Drop’pin@EURES

Finna EURES-ráðgjafa

Atvinnu- og búsetuskilyrði í Eures-löndum

Vinnugagnagrunnur Eures

Þjónusta Eures fyrir atvinnurekendur

Viðburðadagatal Eures

Næstu viðburðir á Netinu

Eures á Facebook

Eures á Twitter

Eures á LinkedIn

Eures á Google+

Upplýsingar

Viðfangsefni
  • Ungmenni
Tengdir hlutar
  • Hjálp og aðstoð
Geirinn
  • Accomodation and food service activities
  • Activities of extraterritorial organisations and bodies
  • Activities of households as employers, undifferentiated goods- and services
  • Administrative and support service activities
  • Agriculture, forestry and fishing
  • Arts, entertainment and recreation
  • Construction
  • Education
  • Electricity, gas, steam and air conditioning supply
  • Financial and insurance activities
  • Human health and social work activities
  • Information and communication
  • Manufacturing
  • Mining and quarrying
  • Other service activities
  • Professional, scientific and technical activities
  • Public administration and defence; compulsory social security
  • Real estate activities
  • Transportation and storage
  • Water supply, sewerage, waste management and remediation activities
  • Wholesale and retail trade; repair of motor vehicles and motorcycles

Fyrirvari

Greinum er ætlað að veita notendum EURES vefgáttarinnar upplýsingar um málefni líðandi stundar og stefnur og örva umræður og umræður. Efni þeirra endurspeglar ekki endilega skoðun Vinnumálastofnunar Evrópu (ELA) eða framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Ennfremur styðja EURES og ELA ekki vefsíður þriðja aðila sem nefnd eru hér að ofan.