Skip to main content
EURES (EURopean Employment Services)
fréttaskýring29 Október 2020European Labour Authority, Directorate-General for Employment, Social Affairs and Inclusion

Hvernig getur EURES hjálpað þér að ráða nýja starfsmenn í Evrópu

Í síbreytilegum heimi getur verið að vinnuveitendur þurfi að leita lengra til að finna bestu starfsmennina. Það getur verið að COVID-19 hafi breytt starfsháttum en enn eru þúsundir atvinnuleitenda í Evrópu og EURES getur hjálpað þér að finna bestu starfsmennina fyrir fyrirtækið þitt.

How EURES can help you recruit new hires in Europe
Shutterstock

Af hverju að nota EURES?

EURES er ókeypis þjónusta sem veitir þér aðgang að stærri hópi atvinnuleitenda í Evrópu til að finna rétta einstaklinginn í starfið, einkum í stöður sem erfitt er að fylla. Það hefur margvíslegan ávinning í för með sér að ráða starfsmenn frá öðrum löndum. Alþjóðlegir starfsmenn koma með nýja færni og menntun, ný tungumál og geta almennt bætt samkeppnishæfni fyrirtækisins þíns.

EURES er með sístækkandi gagnagrunn með yfir 530.000 ferilskrám og til að skoða þær þarftu aðeins að búa til vinnuveitendareikning (skráningin er ókeypis). Það mun gera þér kleift að leita að ferilskrám sem henta kröfum þínum og sýn svo og vista og halda utan um umsækjendur til að auðvelda ráðningarnar.

Fáðu sérsniðinn stuðning frá EURES ráðgjafa

Ef þú hefur spurningar um hvernig eigi að nota EURES erum við með víðfeðmt net EURES ráðgjafa um alla Evrópu sem eru til þjónustu reiðubúnir. EURES ráðgjafar okkar geta:

  • parað lausu stöðuna við hentuga umsækjendur;
  • boðið þér upp á leiðbeiningar og ráð um ráðningar frá öðrum löndum;
  • boðið þér upp á sérhæfða aðstoð fyrir tiltekin landamærasvæði;
  • hjálpað þér við þátttöku á ráðningarviðburðum á verkvangi Evrópskra atvinnudaga (á netinu).

Þó að fundir augnliti til auglitis með EURES ráðgjöfum kunni að vera takmarkaðir vegna COVID-19 getum við enn hjálpað þér í síma eða tölvupósti. Kynntu þér hvernig þú getir haft samband við næsta EURES ráðgjafa í dag.

Evrópskir atvinnudagar (á netinu)

Evrópskir atvinnudagar (á netinu) er verkefni á vegum EURES sem skipuleggur hundruð ráðningarviðburða á staðnum og á netinu í Evrópu. Með því að búa til reikning á verkvangi Evrópskra atvinnudaga (á netinu) getur þú birt laus störf fyrir stóran hóp hæfra umsækjenda og tekið þátt í viðburðum í framtíðinni. Verkvangurinn mun veita þér aðgang að þúsundum ferilskrám.

Með því að nota viðtalsbókunarkerfið okkar getur þú boðið völdum umsækjendum í starfsviðtal í gegnum netið eða á staðnum á viðburðardeginum. Þú getur einnig bókað sérstaka tíma fyrir hvert og eitt viðtal og haldið þau með raunspjall Evrópsku atvinnudagana eða í gegnum Skype. Frekari upplýsingar um Evrópska atvinnudaga (á netinu).

Verkefni á sviði starfshreyfanleika

Fyrsta EURES starfið getur hjálpað þér að finna hæfa starfsmenn í öðru Evrópusambandslandi, Noregi eða á Íslandi. Einkum miðar verkefnið að því að finna áhugasamt ungt fólk á aldrinum 18 til 35 ára fyrir störf sem erfitt er að ráða í. Ef þú rekur lítið eða meðalstórt fyrirtæki getur þú hugsanlega sótt um fjárhagsaðstoð til að standa undir hluta af kostnaði við þjálfun og aðlögun nýja starfsmannsins, lærlingsins eða starfsnemans. Frekari upplýsingar um Fyrsta EURES starfið.

Reactivate getur einnig hjálpað þér að finna hæfa starfsmenn í Evrópu en ólíkt Fyrsta EURES starfinu geta starfsmenn verið á öllum aldri. Verkefnið býður einnig litlum og meðalstórum fyrirtækjum upp á fjárhagsaðstoð til að standa straum af kostnaði við þjálfun og aðlögun nýrra starfsmanna. Frekari upplýsingar um Reactivate.

Til þess að hefja EURES vegferð þína skaltu skrá þig með ókeypis reikning og hafa samband við EURES ráðgjafa í heimalandi þínu í dag.

 

Tengdir hlekkir:

Leita að EURES ráðgjöfum

Búa til reikning fyrir vinnuveitendur

Evrópskir atvinnudagar (á netinu)

FyrstaEURES starfið

Reactivate

 

Nánari upplýsingar:

Evrópskir atvinnudagar

Drop’pin@EURES

Finna Eures ráðgjafa

Atvinnu- og búsetuskilyrði í Eures-löndum

Vinnugagnagrunnur Eures

Þjónusta Eures fyrir vinnuveitendur

Viðburðadagatal Eures

Næstu viðburðir á Netinu

Eures á Facebook

Eures á Twitter

Eures á LinkedIn

Upplýsingar

Viðfangsefni
Vinnumarkaðsfréttir/hreyfanleikafréttirNýliðunarstraumarUngmenni
Tengdir hlutar
Hjálp og aðstoðBúseta & atvinna
Geirinn
Accomodation and food service activitiesActivities of extraterritorial organisations and bodiesActivities of households as employers, undifferentiated goods- and servicesAdministrative and support service activitiesAgriculture, forestry and fishingArts, entertainment and recreationConstructionEducationElectricity, gas, steam and air conditioning supplyFinancial and insurance activitiesHuman health and social work activitiesInformation and communicationManufacturingMining and quarryingOther service activitiesProfessional, scientific and technical activitiesPublic administration and defence; compulsory social securityReal estate activitiesTransportation and storageWater supply, sewerage, waste management and remediation activitiesWholesale and retail trade; repair of motor vehicles and motorcycles

Fyrirvari

Greinum er ætlað að veita notendum EURES vefgáttarinnar upplýsingar um málefni líðandi stundar og stefnur og örva umræður og umræður. Efni þeirra endurspeglar ekki endilega skoðun Vinnumálastofnunar Evrópu (ELA) eða framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Ennfremur styðja EURES og ELA ekki vefsíður þriðja aðila sem nefnd eru hér að ofan.