Skip to main content
EURES
fréttaskýring28 Febrúar 2020European Labour Authority, Directorate-General for Employment, Social Affairs and Inclusion

Vinnumarkaður Evrópusambandsins og vinnustaðir á þriðja áratug þessarar aldar

Hvernig mun vinnumarkaðurinn líta út eftir 10 ár? Munum við enn sinna sömu störfum í sömu geirum með sömu færnina? Hverjir verða samstarfsmenn okkar?

The EU job market and workplace in the 2020s
EURES

Færnispá Cedefop sem spáir fyrir um framtíðarþróun atvinnumála miðar að því að veita okkur sýn á hvernig vinnumarkaður Evrópu muni líklega líta út árið 2030 - og hvaða færni hann muni krefjast. Hún gerir okkur kleift að bera saman atvinnuvæntingar og framtíðarþróun í Evrópu og er hún því kjörið tól fyrir atvinnuleitendur, vinnuveitendur, nemendur, vísindamenn og stefnumótendur.

Spáin hefur verið í stöðugri þróun frá árinu 2005 og veitir nú um stundir upplýsingar um aðildarríki ESB, Ísland, Norður-Makedóníu, Sviss, Tyrkland og Bretland. Hún nær yfir 66 atvinnugeira, 41 starfsgrein og 3 menntunarstig.

Finna má heildarniðurstöður stofnunarinnar á vefsíðu hennar en yfirlit yfir nokkrar þær helstu má finna að neðan.

Vinnuafl

  • Gert er ráð fyrir því að fjöldi fólks á vinnumarkaði muni aukast um 1% fram til 2030
  • Aldur fólks á vinnumarkaði mun breytast lítillega, 0,5% fækkun fólks á aldrinum 25-49 ára og 3,8% vöxtur fólks á aldrinum 64 ára og eldra
  • Gert er ráð fyrir því að fjöldi fólks á vinnualdri muni aukast um 3,7% þó að verulegur munur muni verða á milli landa
  • Kynjajafnvægið mun haldast að mestu það sama, með fleiri karlmenn í vinnu en konur.

Geirar

  • Gert er ráð fyrir hnignun iðnaðar í grunnframleiðslu en vexti í þjónustuiðnaði og háþróuðum framleiðsluiðnaði
  • Þeir þjónustugeirar sem munu vaxa hvað hraðast verða á sviði lögfræði, bókhalds, rannsókna og þróunar, auglýsinga og markaðsrannsókna auk stjórnsýslu og stoðþjónustu
  • Þeir framleiðslugeirar sem munu vaxa hvað hraðast verða á sviði rafbúnaðar, annars vélakosts og búnaðar, framleiðslu og vélknúinna ökutækja.

Störf

  • Gert er ráð fyrir verulegum vexti sérfræðistarfa (t.d. yfirmanna, sérfræðinga og fulltrúa sérfræðinga) og nokkrum vexti tiltekinna starfa þar sem lítillar menntunar er krafist (t.d. við sölu, ræstingu, veitingaþjónustu og umönnun)
  • Gert er ráð fyrir fækkun starfa þar sem þörf er á menntun í meðallagi (t.d. fagmenntaðir iðnaðarmenn, skrifstofufólk)
  • Framboð á háskólanámi kann að vaxa hraðar en eftirspurnin eftir slíkum starfsmönnum en sömu aðstæður munu hafa áhrif á þá sem eru með einhverja eða litla menntun og hæfni.

Verkefni og færni

  • Gert er ráð fyrir því að fjöldi líkamlegra verka starfsmanna muni minnka en fjöldi vitsmunalegra og félagslegra verkefna aukist
  • Viðskiptalæsi, sala/sannfæring og þjónusta/umönnun munu aukast að mikilvægi
  • Veruleg fækkun verður á þörfinni fyrir vélafærni (sem byggir ekki á upplýsinga- og samskiptatækni) og aukin eftirspurn eftir færni á sviði upplýsinga- og samskiptatækni
  • Einnig verður mikil áhersla lögð á getuna til sjálfstæðrar vinnu.

Um Cedefop

Cedefop, einnig er þekkt sem Evrópumiðstöð fyrir þróun starfsmenntunar, var stofnuð árið 1975. Stofnunin hjálpar framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, aðildarríkjunum og aðilum vinnumarkaðarins við að þróa stefnu fyrir starfsmenntun í Evrópu til að auka atvinnuþátttöku og tryggja snjallan og sjálfbæran hagvöxt án útilokunar.

Út 2020 munum við skoða niðurstöður Cedefop í tengslum við einstakar starfsstéttir, allt frá starfsfólki við umönnun til sérfræðinga á sviði upplýsinga- og samskiptatækni. Kíktu fljótlega aftur til að fá frekari upplýsingar.

 

Tengdir hlekkir:

Færnispá Cedefop

 

Nánari upplýsingar:

Evrópskir atvinnudagar

Drop’pin@EURES

Finna Eures ráðgjafa

Atvinnu- og búsetuskilyrði í Eures-löndum

Vinnugagnagrunnur Eures

Þjónusta Eures fyrir vinnuveitendur

Viðburðadagatal Eures

Næstu viðburðir á Netinu

Eures á Facebook

Eures á Twitter

Eures á LinkedIn

Upplýsingar

Viðfangsefni
Ytri EURES fréttirVinnumarkaðsfréttir/hreyfanleikafréttirFréttir/skýrslur/tölfræðiNýliðunarstraumar
Geirinn
Accomodation and food service activitiesActivities of extraterritorial organisations and bodiesActivities of households as employers, undifferentiated goods- and servicesAdministrative and support service activitiesAgriculture, forestry and fishingArts, entertainment and recreationConstructionEducationElectricity, gas, steam and air conditioning supplyFinancial and insurance activitiesHuman health and social work activitiesInformation and communicationManufacturingMining and quarryingOther service activitiesProfessional, scientific and technical activitiesPublic administration and defence; compulsory social securityReal estate activitiesTransportation and storageWater supply, sewerage, waste management and remediation activitiesWholesale and retail trade; repair of motor vehicles and motorcycles

Fyrirvari

Greinum er ætlað að veita notendum EURES vefgáttarinnar upplýsingar um málefni líðandi stundar og stefnur og örva umræður og umræður. Efni þeirra endurspeglar ekki endilega skoðun Vinnumálastofnunar Evrópu (ELA) eða framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Ennfremur styðja EURES og ELA ekki vefsíður þriðja aðila sem nefnd eru hér að ofan.